Fringe er grasrótar- og jaðarlistahátíð að erlendri fyrirmynd. Til að endurspegla jarðarmenninguna sem hátíðin stendur fyrir var ákveðið stór partur af markaðssetningunni yrði settur fram með veglegum pósterum sem hengdir voru upp á óhefðbundnum stöðum í miðbæ Reykjavíkur og nágrenni. Enska orðið Fringe þýðist sem jaðar eða blábrún. Við hönnunina var ákveðið að yfirfæra merkingu orðsins og inntak hátíðarinnar yfir á prentflötinn með því að brjóta upp á enda veggspjaldanna og afhjúpa texta sem var prentaður á bakhliðina. Öll veggspjöldin er hægt að brjóta að ofan og neðan.
Veggspjöldin voru öll prentuð á veglegan 240 gr. Munken Polar pappír sem gerði það að verkum þeim var flestum stolið, jafnvel í útgáfuhófinu.
Veggspjöldin voru tilnefnd til FÍT verðlaunanna 2021.
Ljósmyndir af pósterum Patrick Fringeson